Heilbrigðisstarfsmenn vakna af Covid-19 bólusetningarblundi

frettinArnar Sverrisson, PistlarLeave a Comment

Eftir Arnar Sverrisson:

Samtök heilbrigðisstarfsmanna í Ástralíu (Australian Medical Professional‘ Society) hafa skrifað til allra þingmanna í einstökum ríkjum Ástralíu, á sjálfstjórnarsvæðum og Alríkisþinginu, sem og allra læknaháskóla álfunnar, í þeim tilgangi að benda á, hversu varhugaverð bóluefnin við covid-19 séu.

Bréfið er vitaskuld grundvallað á fjölda vísindalegra gagna, m.a vísindalegri samantekt Phillip M. Altman, lögfræðilegri álitsgerð í sambandi við yfirlýsingu heilbrigðisstarfsmanna og áitsgerð félagsskaps Ástrala um áhættu af bólusetningum.

Hér eru nokkrar stiklur úr fyrrnefndu bréfi:

- Félögum ofannefndra samtaka heilbrigðisstarfsmanna var í raun bannað að draga gagnsemi og framkvæmd bólusetninga við covid-19 í efa, þar sem stjórnvöld höfðu staðhæft við almenning, að bóluefnin væru bæði „örugg“ og „gagnleg.“

- Ritrýnd rannsókn hefur sýnt fram á, að broddhvítan (spike protein), sem mRNA (boðkjarnsýra), hvetur til framleiðslu á, smýgur inn í kjarna frumunnar og hefur áhrif á erfðaefnið (DNA).

- Málhelsi eða þöggun heilbrigðisstarfsmann var til þess fallin að styðja við bólusetningu með efnum, sem engin hafði sýnt fram á með fullnægjandi hætti, að virkuðu, hvorki í bráð né lengd.

- Fram að þessu hafa engin efni í mannkynssögunni valdið fleiri dauðsföllum, veikindum, skaða og fötlun samkvæmt opinberum skráningum. En í raun og reynd eru aukaverkanirnar miklu fleiri.

-Í Ástralíu hafa verið skráðar fleiri aukaverkanir á einu og hálfu ári en síðustu hálfa öld fyrir önnur bóluefni.

Úr skýrslu Phillip M. Altman:

-„Bólusetning um heim allan með Covid-19 erfðabóluefninu (e. gene-based vaccine) hefur í bráð stuðlað að miklu fleiri dauðsföllum, sjúkdómum, skaðsemi og fötlunum, heldur en nokkurt lyf í sögu læknisfræðinnar. Sökum þess, að algjörlega er gagna vant um áhrif [bóluefnanna] í lengd, er viðbúið, að hugsanleg skaðsemi (þar með talin krabbamein, sjúkdómar í taugkerfi og ónæmiskerfi) gætu orðið enn þá afdrifaríkari.“

-Meðan ástralskir heilbrigðisstarfsmenn mótmæla og yfirvöld sitja við sinn covid keip, heldur Pfizer fúskið áfram eins og ekkert hafi í skorist, m.a. með bólusetningum barna.

-Ísraelski ónæmisfræðingurinn, Zvika Granot, segir t.d. á þessa leið: Meðan á covid-fárinu hefur staðið, höfum við orðið vitni að margs konar misþyrmingu á vísindum, auk lyga og vafasamra sanninda. Oftsinnis höfum við heyrt ágeng stjórnvöld boða aðgerðir á grundvelli vísinda i skötulíki.

Heimildir er að finna undir grein Arnars á facebook.

Skildu eftir skilaboð