Þekktur spænskur læknir segir æðstu embættismenn ekki hafa fengið Covid bóluefnið

frettinCovid bóluefni, Erlent, Heilbrigðismál2 Comments

Dr. Manuel Jesús Rodriguez, sem er vel þekktur réttarlæknir á Spáni, hefur upplýst að æðstu embættismenn ríkisins, stjórnmálamenn og dómarar hafi ekki verið sprautaðir með Covid „bóluefnum“, eða hafi fengið saltvatn í staðinn. Þetta er samkvæmt opinberum skjölum sagði læknirinn og ítrekaði: „Ég endurtek, það eru til gögn frá landlæknisembættinu (Colegio de Médicos) sem staðfesta það. Þetta kom fram í viðtali við Rodriquez á spænsku stöðinni Canal 5 í síðasta mánuði.

Dr. Rodriguez sagði í fyrrnefndu viðtali: „Eftir 16.000 krufningar sem gerðar voru í Asturias á Spáni á einstaklingnum sem létust af völdum Covid eða með Covid, fannst ekkert óeðlilegt og ekkert grunsamlegt í krufningum áður en sprautuherferðin hófst. En í krufningum sem aftur á móti voru gerðar eftir að herferðin hófst er að finna blóðtappa, allt að einn metra að lengd, auk hrörnunar í öllum líffærum þeirra látnu.“

Það er einmitt af þessum ástæðum sem yfirstéttir samfélagsins forðast að fá sprautuna og samkvæmt Dr. Rodriguez, vissi landlæknisembættið þetta vel.

Rodriguez hefur þegar undirbúið málsókn fyrir skjalafals á opinberum gögnum, þ.e.a.s. fölsunar á bólusetningavottorðum.

Fréttin hefur áður sagt frá því að yfirstéttarfólk á Spáni hafi borgað sérstaklega fyrir að fá saltvatnslausn í stað „bóluefnisins“ sem almenningi var gefin, þar á meðal José Maria Fernandez Sousa-Faro, forstjóri evrópska lyfjarisans PharmaMar.  Dr. Sousa-Faro var meðal 2.200 manna á lista sem landslögreglan hefur tekið saman yfir þá sem fengu ekkert bóluefni en eru skráðir sem bólusettir í heilbrigðiskerfi landsins. Á listanum eru mörg þekkt andlit og fólk sem tilheyrir yfirstéttinni.

Viðtalið við Rodriguez á spænsku má sjá hér (hægt að setja cc og velja tannhjólið og sjálfvirka þýðingu yfir á ensku).

2 Comments on “Þekktur spænskur læknir segir æðstu embættismenn ekki hafa fengið Covid bóluefnið”

  1. Covid vaccinan var stærsta visindalega tilraun ever. Ryka og ahrifamesta folkið biður sig ekki framm i að vera tilraunadyr. En svifast greinilega einskis að plata almugan til að gera það fyrir sig með að þykjast vera þau fyrstu sem gera og það i beynni utsendingu sem atti að sanna það. Og allir þyrptust i röðina til að syna að væru lika hetjur. Æj. 😩

Skildu eftir skilaboð