„Embættismenn dreifðu lygum um Covid og sviku borgarana“

frettinCOVID-19, HeilbrigðismálLeave a Comment

Króatíski evrópuþingmaðurinn Mislav Kolakusic sendir annað slagið frá sér myndskilaboð og deilir á Twitter.

Í dag sendi hann frá sér stutt en skýr skilaboð þar sem hann segir að þær röngu upplýsingar um COVID-19 sem embættismenn og heilbrigðisstarfsmenn dreifðu um allan heim hafi ekki aðeins verið skaðleg lygi heldur líka algjör svik við borgarana.

Lygar hafa skaðað trúverðugleika hins opinbera heilbrigðiskerfis verulega og afleiðingarnar verða varanlegar, sagði Kolakusic og bætti við að þó að heilbrigðisstarfsfólk segi eitthvað sem satt er, þá munu borgararnir ekki taka mark á því.

„Svona lygar og fals drepa fólk. Og fjölmiðlar héldu borgurunum sljóum þannig að auðvelt var að stjórna þeim, sagði hann í upptöku sem heyra má hér neðar:

Skildu eftir skilaboð