29 ára atvinnumaður í fjallahjólreiðum með hjartabólgur og fleiri sjúkdóma eftir Pfizer

frettinErlent

Kyle Warner, 29 ára avinnumaður í fjallahjólareiðlum, greindist með gollurshússbólgu, taugasjúkdóminn POTS og fylgigigt eftir að hafa fengið annan skammtinn af Pfizer bóluefninu.

Um tveimur vikum eftir síðari bólusetninguna fékk Kyle mjög öran hjartslátt og fór á bráðamóttökuna. Læknirinn neitaði að trúa því að þetta væri aukaverkun af bóluefninu og vildi  meina að hjólreiðakappinn væri í geðrofi. Eftir að Kyle fór á annað sjúkrahús vegna frekari hjartavandamála var honum vísað til hjartalæknis sem greindi hann með gollurshússbólgu.

Í fjóra mánuði hefur Kyle verið svo veikur að hann hefur hvorki getað unnið né hjólað, jafnvel andleg áreynsla getur valdið því að honum versni líkamlega.

Á samstöðufundi meðal fólks sem skaddast hefur af Covid bóluefnum og haldinn var í Washington, D.C., hélt Kyle erindi í þeim tilgangi að efla stuðning við þá sem hafa skaðast af bólusetningum. Hann lýsti einnig yfir andstöðu sinni við bólusetningaskyldu. „Mín skoðun er sú að ef eitthvað er áhættusamt, þá þarf það að vera val," sagði Kyle.

Í myndbandinu hér að neðan lýsir Kyle Warner því grátandi hvernig líf hans hefur breyst frá því að hann veiktist eftir sprauturnar, að fólk vilji ekki hlusta á hann eða trúa honum, ekki einu sinni sálfræðingar.