Magnús biðst afsökunar á sínum hlut í Landsdómsmálinu

frettinInnlendarLeave a Comment

Magnús Orri Schram gaf út yfirlýsingu á facebook nú í kvöld þar sem hann biðst afsökunar á sínum hlut í Landsdómsmálinu. Magnús sem þá var þingmaður Samfylkingarinnar, segist hafa tekið þá afstöðu að rétt væri að vísa málum Geirs H. Haarde, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Árna M. Mathiesen til Landsdóms, en sér eftir þeirri ákvörðun og segist hafa látið tíðarandann á þeim tíma ráða afstöðu sinni. 

Yfirlýsing Magnúsar er eftirfarandi:

„Ég vil biðjast afsökunar á mínum hlut í Landsdómsmálinu

Fyrir tólf árum ákvað meirihluti Alþingis að vísa máli Geirs H. Haarde til landsdóms. Á þeim tíma sat ég á Alþingi og í nefnd þingmanna sem fjallaði um Rannsóknarskýrsluna og hvernig ætti að taka á lögum um ráðherraábyrgð. Mín afstaða var þá að rétt væri að vísa málum Geirs H. Haarde, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Árna M. Mathiesen til Landsdóms. Þeirri ákvörðun sé ég eftir.

Í dag vildi ég óska þess að ég hefði haft hugrekki til að tala fyrir því að umfjöllun um ábyrgð ráðherra hefði lokið á vettvangi nefndarinnar. Á sínum tíma lét ég andann í þjóðfélaginu hafa áhrif á mína afstöðu, þegar það hefði verið rétt ákvörðun að vísa engum málum til Landsdóms.

Ég er sannfærður um að þau sem voru til umfjöllunar – Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni M. Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson, hafa unnið að heilindum við erfið störf í yfirþyrmandi aðstæðum. Ég hef persónulega beðið þau afsökunar á ábyrgð minni og vil einnig gera það hér, með opinberum hætti.

Ég var nýlega spurður að því hvort ég væri enn sömu skoðunar varðandi ákvörðun nefndarinnar og Alþingis, um að vísa málum ráðherranna til Landsdóms og svarið er að ég er það ekki. Málið hefur lengi hvílt þungt á mér og þótt ekki sé hægt að taka aftur þessi mistök þá er mikilvægt að gangast við þeim.“

Skildu eftir skilaboð