Keyrt á flugvél Icelandair á Heathrow flugvelli

frettinErlentLeave a Comment

Flugvél Icelandair lenti í árekstri við farþegaflugvél Korean Air á Heathrow-flugvelli í London í kvöld. Það var væng­ur flug­vél­ar Kor­e­an Air sem skall á stél­ Icelanda­ir vélarinnar sem var kyrrstærð.  Engan sakaði en farþegar voru um borð þegar áreksturinn varð.

Meðal farþega voru 50 nemendur í Verzlunarskóla Íslands sem bíða nú á Heathrow-flugvellinum í London án farangurs. Ferð nemendanna var hluti af sér­stök­um Harry Potter-valáfanga og voru því kennarar skólans með.

Samkvæmt frétt mbl.is sem talaði við farþega vélar Icelandair var þetta ein­stak­lega skrít­in upp­lif­un og farþegum mikið brugðið.


Image

Skildu eftir skilaboð