Áskorun um að stöðva stríðið í Úkraínu strax

frettinInnlent, Úkraínustríðið1 Comment

100 Íslendingar hafa skorað á leiðtoga evrópskra ríkja að stöðva stríðið í Úkraínu strax.

„Við undirritaðir friðarsinnar á Íslandi skorum á leiðtoga evrópskra ríkja að stöðva stríðið í Úkraínu nú þegar og vinna í kjölfarið að friði og samvinnu í Evrópu.

Stríð eru óásættanleg leið til að útkljá ágreining ríkja eða hópa á milli. Evrópa getur státað af langri sögu siðmenningar og lýðræðis þar sem samvinna og þekkingarleit hafa leitt til stórkostlegra framfara. Við höfum einnig upplifað hrikalegar styrjaldir, átök, sundrungu og ofbeldi. Styrjaldir hafa aldrei leitt annað en hörmungar yfir álfuna og gera það einnig nú.

Stríðið í Úkraínu verður að stöðva tafarlaust með skilyrðislausu vopnahléi. Í kjölfarið þarf strax að ræða og semja um langvarandi frið sem er grunnur að mannréttindum og lýðræði. Friður og framfarir í Evrópu eru sameiginlegt verkefni álfunnar allrar. Þar mega þjóðarleiðtogar ekki láta sitt eftir liggja. Byrjum friðarferlið strax í dag.“

  • 1. Anna Friðriksdóttir, lyfjafræðingur, Reykjavík
  • 2. Anna Guðmundsdóttir, friðarsinni, Reykjavík
  • 3. Anna S Hróðmarsdóttir, Reykjavík
  • 4. Anna Þorsteinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Mývatnssveit
  • 5. Árni Hjartarson, jarðfræðingur, Reykjavík
  • 6. Ásta Steingerður Geirsdóttir, garðyrkjufræðingur og leiðsögumaður, Borgarfirði eystri
  • 7. Auður Alfífa Ketilsdóttir, Reykjavík
  • 8. Auður Lilja Erlingsdóttir, deildarstjóri, Reykjavík
  • 9. Árni Daníel Júlíusson, doktor í sagnfræði, Reykjavík
  • 10. Björgvin G. Sigurðsson, Selfossi
  • 11. Brynhildur Björnsdóttir, fjölmiðlakona og söngkona, Reykjavík
  • 12. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík
  • 13. Davíð Kristjánsson, Selfossi
  • 14. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og kennari, Reykjavík
  • 15. Drífa Eysteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Selfossi
  • 16. Drífa Lýðsdóttir, Reykjavík
  • 17. Einar Ólafsson, rithöfundur, Kópavogi
  • 18. Elín Oddný Sigurðardóttir, félagsfræðingur, Reykjavík
  • 19. Elísabet Berta Bjarnadóttir, Kópavogi
  • 20. Eygló Jónsdóttir, kennari og rithöfundur, Hafnarfirði
  • 21. Eyrún Ósk Jónsdóttir, rithöfundur, Hafnarfirði
  • 22. Finnbogi Óskarsson, efnafræðingur, Reykjavík
  • 23. Finnur Torfi Hjörleifsson, Borgarbyggð.
  • 24. Friðrik Atlason, teymisstjóri, Reykjavík
  • 25. Gísli Fannberg, Reykjavík.
  • 26. Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur, Kópavogi
  • 27. Guðmundur Guðmundsson, matvælafræðingur, Reykjavík
  • 28. Guðríður Adda Ragnarsdóttir, kennari. Reykjavík.
  • 29. Guðríður Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri, Reykjavík
  • 30. Guðrún Hallgrímsdóttir, Matvælaverkfræðingur, Reykjavík
  • 31. Guðrún Hannesdóttir, rithöfundur, Reykjavik
  • 32. Gunnar Þór Jónsson, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
  • 33. Gunnlaugur Haraldsson, rithöfundur, Reykjavík
  • 34. Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, Reykjavík
  • 35. Gyða Dröfn Jónudóttir Hjaltadóttir, sálfræðingur, Reykjavík
  • 36. Gylfi Þorkelsson, kennari, Selfossi
  • 37. Hallberg Brynjar Guðmundsson, nemi, Reykjavík
  • 38. Hanna Kristín Hallgrímsdóttir, öryrki, Reykjavík
  • 39. Haraldur Ólafsson, prófessor, Reykjavik
  • 40. Harpa Kristbergsdóttir, aðgerðarsinni, Reykjavík
  • 41. Haukur Jóhannsson, verkfræðingur, Kópavogur
  • 42. Helga Kress, prófessor, Reykjavík
  • 43. Hjalti Hugason, prófessor emeritus, Reykjavík
  • 44. Hjörtur Hjartarson, Reykjavík.
  • 45. Hlynur Hallsson, myndlistarmaður, Akureyri
  • 46. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti, Reykjavík
  • 47. Hringur Hafsteinsson, sköpunarstjóri, Garðabæ
  • 48. Hrund Ólafsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari, Reykjavík
  • 49. Ingibjörg Haraldsdóttir, kennari, Reykjavík
  • 50. Ingibjörg V Friðbjörnsdóttir, Kópavogi
  • 51. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Reykjavík
  • 52. Ingvi Þór Kormáksson, hljómlistarmaður, Reykjavík
  • 53. Ísleifur Arnórsson, stúdentsefni, Reykjavík
  • 54. Jón Elíasson, sjómaður, Bolungarvík.
  • 55. Jón Karl Stefánsson, doktorsnemi, Reykjavik
  • 56. Júlíus K Valdimarsson, aðgerðasinni, Reykjavík
  • 57. Kamilla Einarsdóttir, rithöfundur, Reykjavík
  • 58. Kári Þorgrímsson bóndi Garði Mývatnssveit
  • 59. Karl Héðinn Kristjánsson, fjölmiðlamaður, Reykjavík
  • 60. Kristín Böðvarsdóttir, kennari á eftirlaunum, Reykjavík
  • 61. Lowana Veal, aðgerðasinni og líffræðingur, Reykjavík
  • 62. María Hauksdóttir Kópavogur
  • 63. Nóam Óli Stefánsson, nemi, Reykjavík
  • 64. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, íslenskukennari, Ísafirði
  • 65. René Biasone, varaþingmaður, Reykjavík.
  • 66. Rúna Baldvinsdóttir, öryrki, Reykjavík
  • 67. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi, Reykjavík
  • 68. Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastjóri, Reykjavík
  • 69. Sigríður Gísladóttir, Dýralæknir, Ísafirði
  • 70. Sigrún Skúladóttir, sjúkraliði, Reykjavík
  • 71. Sigtryggur Jónsson Reykjavík Lífeyrisþegi.
  • 72. Sigurður Flosason, bifreiðastjóri, Kópavogi
  • 73. Sigurður G. Tómasson, f.v. útvarpsmaður, Mosfellsbæ
  • 74. Sigurður Ingi Andrésson, véltæknifræðingur, Selfossi
  • 75. Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, Reykjavík
  • 76. Sjöfn Ingólfsdóttir, bókavörður, Reykjavík
  • 77. Soffía Sigurðardóttir, friðarsinni, Selfossi
  • 78. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Reykjavík
  • 79. Stefán Pálsson, sagnfræðingur, Reykjavík
  • 80. Steinarr Bjarni Guðmundsson, bílstjóri, Höfn
  • 81. Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir, sagnfræðingur, Reykjavík
  • 82. Svanur Gísli Þorkelsson, leiðsögumaður, Reykjanesbæ
  • 83. Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor, Reykjavík
  • 84. Sæþór Benjamín Randalsson, matráður, Kópavogi
  • 85. Tjörvi Schiöth, nemi, Reykjavík
  • 86. Trausti Breiðfjörð Magnússon, borgarfulltrúi, Reykjavík
  • 87. Trausti Steinsson, heimsreisumaður, Hveragerði
  • 88. Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sagnfræðingur og sirkúslistakona, Ólafsfirði
  • 89. Valgeir Jónasson, rafeindavirki, Reykjavík
  • 90. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, þjóðfræðingur, Hafnarfirði
  • 91. Vigdís Hlíf Sigurðardóttir, kennari, Reykjavík
  • 92. Vilborg Ölversdóttir, Reykjavík
  • 93. Þór Vigfússon, myndlistarmaður, Djúpavogi
  • 94. Þóra Pálsdóttir, kennari, Kópavogi
  • 95. Þórarinn Hjartarson, sagnfræðingur og stálsmiður, Akureyri
  • 96. Þórarinn Magnússon, bóndi, Frostastöðum, Skagafirði
  • 97. Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir, Selfossi
  • 98. Þorvaldur Örn Árnason, líffræðingur, Vogum
  • 99. Þorvaldur Þorvaldsson, smiður, Reykjavík
  • 100. Þuríður Backman, fv. alþingismaður, Kópavogi

One Comment on “Áskorun um að stöðva stríðið í Úkraínu strax”

  1. Það er vel hægt að stoppa þetta blóðbað í Úkraínu!

    fyrsta skrefið að friði er að leggja NATO niður og koma kananum út úr Evrópu svo ALLAR Evrópu þjóðirnar geti sest niður og reynt að koma sér saman um öryggissáttmála fyrir Evrópu.

    Það þíðir lítið að útiloka Rússland frá Evrópuþingi og halda því fram á sama tíma að þessar þjóðir vilji frið?
    Þetta Evrópuþing fyrir nokkrum dögum síðan var trúðasamkoma haldi í þeim eina tilgangi til að leita leiða til að koma höggi á Rússland og ekkert annað, allt saman stýrt af BNA sem virðast með ógnarstjórn og viðskiptabönnum stjórna megninu af Evrópu!

    Ætli þessum kjánum á Evrópuþinginu hefði ekki verið nær að leggja meiri vinnu í að rannsaka stærsta hryðjuverk Evrópu frá tímum seinni heimstyrjaldar á Nordsteam gasleiðslunum enn að ausa vopnum í þessa leppstjórn Úkraínu eða skálda hryðjuverkaskrá á hendur rússum. Ég er hálf hræddur um að megnið af norðurlöndunum kom nærri þessu hryðjuverki eða hafði vitneskju um það ásamt af sjálfsögðu höfuðpaurnum Bandaríkjunum.

Skildu eftir skilaboð