Bólusettir starfsmenn Lögreglunnar í einangrun og sóttkví

frettinInnlendar

Sjö starfsmenn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru komnir í einangrun eftir að COVID-19 smit greindust hjá embættinu og tíu til viðbótar eru í sóttkví. Til að fyllsta öryggis verði gætt er ráðgert að tvö hundruð starfsmenn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fari í skimun og stendur sú vinna yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Þrátt fyrir ofangreint gengur starfsemi embættisins fyrir sig með eðlilegum hætti og hefur ekki áhrif á þau útköll sem lögreglan þarf að sinna.

Sú staða sem er uppi minnir okkur hins vegar á að COVID-19 er hvergi nærri lokið og því mikilvægt að fara varlega og huga að sóttvörnum í hvívetna," segir einnig í tilkynningunni.

Samkvæmt upplýsingum sem frettin.is fékk frá embættinu rétt í þessu eru allir starfsmenn lögreglunnar bólusettir við Covid. Staðan ætti því einnig að minna okkur á að Covid bóluefnið virkar ekki eins og hefðbundin bóluefni gera, þ.e.a.s. að veita ónæmi gegn tilteknum sjúkdómi.