Kona í dái fór til himna og hitti Jesú – kom aftur með skilaboð frá Guði: myndband

frettinErlent4 Comments

Hvort sem þú trúir á líf eftir dauðann eða ekki, mun sagan af konu sem var nánast úrskurðuð látin og heiladauð en lifði af, fá þig til að hugsa um hvað raunverulega gerist þegar manneskja yfirgefur þennan heim.

Það var í mars 2020 þegar kona að nafni Valerie Paters lenti í alvarlegu bílslysi við vörubíl. Bifreið hennar lenti undir vörubifreiðinni og hlaut konan mikla áverka. Þegar fyrsti viðbragðsaðili kom á vettvang var hann viss um að Valerie myndi ekki lifa af.

Þegar á sjúkrahúsið var komið var fjölskyldu hennar sagt að líkurnar á að Valerie lifði af væru litlar og þau gerðu sér ekki miklar vonir. Nokkru síðar sögðu þeir að Valerie sýndi enga heilavirkni.

Á sama tíma og læknar reyndu að bjarga lífi hennar, hittust meðlimir kirkjunnar ásamt fjölskyldu Valerie og héldu bænastund, fólkið bað Guð um að lækna hana og þyrma lífi hennar.

Systir Valerie, Cheryl, missti aldrei vonina. Þess í stað sneri hún sér að Guði og bað hann að hjálpa systur sinni og þyrma lífi hennar. Cheryl las upp Sálm 118:17 úr ritningunni fyrir systur sína, þar sem segir: „Ég mun ekki deyja heldur lifa og kunngjöra það sem Drottinn hefur gjört.“ Cheryl vissi ekki að bæn hennar myndi virka á svo undraverðan hátt.

Valerie Paters heiladauð á sjúkrahúsi

Á  meðan ástvinir Valerie á jörðinni báðu til Guðs og vonuðu að hún myndi koma til baka, gekk hún í gegnum himneska reynslu. Samkvæmt vitnisburði hennar fór hún til himnaríkis og lýsir því eins og blindandi ljósi.

Konan lýsir því að í öllu þessu mikla ljósi þá hafi Jesús sjálfur boðið hana velkomna til himna og hann hafi brosað innilega til hennar og gefið henni faðmlag og segist hún hafa fundið fyrir mikilli ást og kærleik, nokkuð sem hún hafði aldrei fundið fyrir áður.

„Ég fann fyrir innilegri ást og kærleika sem hann bar til mín,“ rifjar hún upp. „Mér leið eins og ég væri loksins komin heim og ég uppgötvaði tilgang minn,“segir Valerie

Valerie Paters

„Hann elskar okkur öll sköpun Guðs,“ segir hún um Jesús. „Það var ekki neitt sem ég gerði fyrir hann. Það var ekki frammistaða mín. Ekkert. Það var bara ég, ég fann fyrir innilegri ást og hann elskaði mig, mér fannst ég ekki eiga þetta skilið,“ segir Valerie.

Vitnisburður Valerie kom öllum á óvart, hún útskýrir í myndbandinu hér neðar hvað gerðist þegar Jesús sagði henni að fara aftur til jarðar.

Endilega deildu þessum magnaða vitnisburði til fjölskyldu og vina, Jesús elskar alla.

.

4 Comments on “Kona í dái fór til himna og hitti Jesú – kom aftur með skilaboð frá Guði: myndband”

  1. Guð er raunverulegur, fólk þarf ekki annað en að líta á hið ótrúlega Sköpunarverk sem er Alheimurinn og lífið á Jörðinni, en því miður vilja margir lifa í synd og afneita sannleikanum.

  2. Það er inn í dag að trúa ekki, margir hafna Guði og glata sál sinni. Aldrei eins áberandi og á síðustu tímum, hver er staðan í dag, hatur, stríð, hriðjuverk, sjúkdómar, hungur…

Skildu eftir skilaboð