Veruleg aukning í hraunrennsli og jarðskjálftar

frettinInnlendarLeave a Comment

Verulegar jarðhræringar hafa verið á Reykjanesinu að undanförnu og niðurstöðurnar nú eru nokkur tíðindi, segir í samantektinni. 

„Veruleg aukning hefur orðið í hraunrennsli í Fagradalsfjalli síðustu vikuna.  Meðalrennslið yfir tímabilið mælist 13 m3/s sem er miklu meira en þeir tæplega 8 m3/s sem áður hafa mælst. Aukið flæði hefur haldist í hendur við hækkandi kvikustróka og öfluga framrás hraunsins í Meradölum.  Gosið er nú tvöfalt öflugra en það hefur verið lengst af.   Merki um aukningu hafa þó verið undanfarnar tvær vikur en mælingin nú tekur af öll tvímæli“, segir í tilkynningu á vef Jarðvísindastofnunar.

Rúmmál hraunsins er nú orðið rúmlega 30 millj. rúmmetrar og flatarmál þess tæplega 1,8 ferkílómetrar.

Einnig er að finna á vef Jarðvísindastofnunar áhugaverð samantekt á þróun gossins á þeim rúmlega 50 dögum sem liðnir eru frá upphafi þess.

Þá hafa fundist jarðskjálftar víða á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, skjálfti að stærð 3.7 mældist í gær og svo reið snarp­ur jarðskjálfti yfir suðvest­ur­hornið nú á fjórða tímanum sem var um 4.2 að stærð og fannst hann vel víða á höfuðborg­ar­svæðinu.

Skildu eftir skilaboð