19 ára gamall rappari skotinn til bana í Svíþjóð

frettinErlent

19 ára gamli rapparinn Einár var myrtur í gær af glæpagengi nærri Hammerby í Svíþjóð. Hann hafði sjálfur verið virkur í glæpagengi hér áður fyrr og virðist hafa haldið einhverjum tengslum við skipulagða glæpastarfsemi.

Einár sem lést af sárum sinum á vettvangi átti að vera vitni  í máli þar sem hann var frelsisviptur af þekktum glæpahring fyrir tveimur vikum.

Einár var gríðalega vinsæll í Svíþjóð en virðist aldrei hafa getað sagt skilið við þann kúltúr sem hann ólst upp í.

Þess má geta að allmargir rapparar í Svíþjóð  hafa verið ákærðir og fengið dóm í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi og gróft ofbeldi, meðal annars þar sem skotvopn hafa verið notuð.

Image
Lögregla að störfum við vettvang glæpsins.