Þrír hermenn og lögreglumaður hnigu niður við útför drottningarinnar – vörður datt niður við kistuna

frettinErlent1 Comment

Þrír hermenn þurftu aðstoð við útför Englandsdrottningar í gær við Wellington Arch skömmu fyrir klukkan 14:00.

Einn þeirra virtist hrynja niður eftir að konungsfjölskyldan var farin, en tveir aðrir þurftu líka hjálp fyrir og eftir flutning kistu drottningarinnar í líkbílinn.

Í Hyde Park kastalanum hrasaði annar hermaður og var fluttur á brott af samstarfsmanni og fyrr um daginn var lögregluþjónn á vakt rétt við þingtorgið borinn burt á börum af sjóliðum eftir að hafa fallið niður.

St. John Ambulance neyðarþjónustan veitti fjölda manns aðstoð sem höfðu gegnið til liðs við mannfjöldann til að kveðja drottninguna.

Frá klukkan 8 - 13 á mánudag hafði þjónustan aðstoðað 238 manns, þar af voru 36 fluttir á sjúkrahús.

Og eins og fram kom í síðustu viku þá leið yfir einn af vörðum drottningarinnar síðast­liðin fimmtu­dag á meðan hann stóð vaktina við kistu Elísa­betar í West­min­ster Hall. Myndband af atvikinu má sjá neðar.

Fimm hermenn hnigu niður í sumar við hátíðarhöld drottningarinnar

Í júní sl. hnigu fimm hermenn niður við hátíðarhöld Elísabetar drottningar. Einhverjir vildu meina að hitanum hafi verið um að kenna, en um 20 gráður á Celsius mældist þann dag.


One Comment on “Þrír hermenn og lögreglumaður hnigu niður við útför drottningarinnar – vörður datt niður við kistuna”

  1. Sprauturnar. Það að það líði yfir fólk í beinni útsendingu er orðið hið nýa norm.

Skildu eftir skilaboð