Sonur Sigga Storms hafður á ganginum á Landspítalanum

frettinHeilbrigðismálLeave a Comment

Sigurður Þ. Ragnarsson (Siggi Stormur) segir frá því á facebook að sonur hans sem hefur verið lífshættulega veikur í 10 mánuði sitji nú á ganginum á Landspítalanum eftir bakslag. Sigurður spyr hvort Willum Þór heilbrigðisráðherra myndi sætta sig við þetta og að ekki væri að undra að lykilfólk eins og hjúkrunarfræðingar forði sér:

„Þegar menn eru búnir að vera lífshættulega veikir á spítala í 10 mánuði samfellt, verða stundum bakslög þrátt fyrir útskrift. Það gerðist því miður hjá syni mínum sem nú er innskráður á LSH við Hringbraut. En hvað má bjóða mjög veiku fólki. Kannski hvað sem er. Myndirnar tvær sem hér fylgja með eru af meltinga- og nýrnadeild LSH við Hringbraut, þar sem minn maður dvelur.

Ætli Willum Þór Þórsson góður vinur minn og fyrrum starfsfélagi til margra ára myndi sætta sig við þetta? Og þá er ég að meina eftir að hafa verið bundinn við þessa stofnun í 10 mánuði, í kringum hvíta sloppa og hvíta veggi í öllu sínu veldi mánuðum saman. Verði þeim að góðu sem finnst þetta í lagi. Myndin er tekin í dag 14. 10. 22. Mér ofbýður þetta hreint út sagt. Svo undrast menn að lykilfólk eins og hjúkrunarfræðingar forði sér.“

Skildu eftir skilaboð