Birgir Þórarins­son genginn til liðs við Sjálf­stæðis­flokkinn

frettinInnlendar1 Comment

Birgir Þórarinsson, þingmaður Suðurkjördæmis, hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa verið þingmaður fyrir Miðflokkinn í fjögur ár.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun. Birgir segir í samtali við blaðið að hann hafi gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í gærkvöldi en hann hafi greint Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, frá vistaskiptunum áður. Þá hafi hann rætt málið við varaþingmann sinn, Ernu Bjarnadóttur, sem styðji hann í ákvörðuninni.

Nú eru því aðeins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins og Bergþór Ólason þingmaður flokksins í Norðvesturkjördæmi eftir í þingflokki Miðflokks. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú því sautján þingmenn en Miðflokkurinn aðeins tvo.

Að sögn Birgis megi rekja vistaskiptin allt aftur til Klaustursmálsins sem upp kom árið í nóvember 2018 þó svo að atburðarrásin hafi verið hröð í þessari viku. Hann hafi verið ósáttur með Klaustursmálið þegar það kom upp á sínum tíma og vonað að samflokksmenn hans hefðu lært af því en annað hafi svo komið í ljós. Í kjölfar gagnrýni sinnar hafi aðrir flokksmenn aldrei treyst honum fyllilega. Hann eigi því ekki lengur samleið með Miðflokksmönnum.

„Þetta er ekki léttvæg ákvörðun, ég held það sjái allir, og ég tek hana að mjög vel ígrunduðu máli. En eftir allt það sem á undan er gengið og þá forsögu, sem ég lýsi í grein minni, þá ríkir ekki lengur traust milli mín og forystu flokksins. Í ljósi þess væri ekki heiðarlegt hjá mér, hvorki gagnvart sjálfum mér né kjósendum, að halda áfram innan hóps þar sem skortir gagnkvæmt traust,“ segir Birgir í viðtali við Morgunblaðið sem birtist í morgun. Vísar hann þar til greinar, sem hann skrifaði og birtist í blaðinu í morgun.

Segir að ráðist hafi verið í skipulega aðför gegn honum í prófkjöri

Hann segir það hafa komið skýrt í ljós í kosningunum nú að hann væri ekki velkominn innan flokksins.

„Ég var hins vegar fullur vilja til þess að láta hlutina ganga og að við myndum ganga sameinuð til þessarar kosningabaráttu. En sú varð ekki raunin. Það var beinlínis ráðist í skipulega aðför gegn mér í prófkjörsbaráttu og allt gert til þess að ég yrði ekki oddviti,“ segir Birgir í viðtali við Morgunblaðið.

Í fyrrnefndri grein eftir Birgi sem birtist í Morgunblaðinu í morgun ítrekar hann að Klaustursmálið hafi orðið honum að falli innan flokksins.

„Ég gagnrýndi samflokksmenn mína sem í áttu hlut vegna þess að heilindi við eigin samvisku og sú ábyrgð að breyta rétt í þjónustu við kjósendur er fyrsta skylda þingmanna. Eftir gagnrýni mína á Klausturmálið naut ég aldrei fulls trausts innan hópsins og um tíma var beinlínis litið svo á að ég væri vandamálið.“

Þingflokkkur Sjálfstæðisflokks samþykkti inngöngu Birgis samhljóða

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur staðfest inngöngu Miðflokksmannsins fyrrverandi í Sjálfstæðisflokkinn í samtali við Morgunblaðið.

„Þingflokkurinn samþykkti beiðni Birgis Þórarinssonar um inngöngu samhljóða. Við fögnum því að sjálfsögðu að fá nýjan liðsmann, sem við þekkjum vel og þetta styrkir okkur í þeim störfum sem fram undan eru.“

Visir greindi frá.

One Comment on “Birgir Þórarins­son genginn til liðs við Sjálf­stæðis­flokkinn”

  1. Lítil persóna þessi Birgir, stal 2.208 atkvæðum míns kjördæmis. Sannkallaður svikari, gott hann tók ekki vígslu til prests, er ekki viss um að það hefði hjálpað honum upp á fyrirgefningu.

Skildu eftir skilaboð