Hellen er dauðvona og sendir út neyðarkall, vill fá að deyja á Íslandi

frettinInnlendarLeave a Comment

Hellen Linda Drake betur þekkt sem Baugalín sendir frá sér neyðarkall á dögunum en hún er föst á Englandi og hennar æðsta ósk er að fá að ljúka lífsferðalagi sínu hér heima á Íslandi, Baugalín skrifar:

„Ég er stödd í mesta vanda lífs míns til þessa, en fyrir rúmu ári síðan fékk ég blóðtappa í tá á vinstri fæti svo hún varð fjólublá. Stuttu seinna kom í ljós að ég var með krabbamein í beinmerg sem lætur hann framleiða storknunarfrumur í linnulausu akkorði,“ segir Baugalín og bætir við:

„Ég var sett á krabbameinslyfjameðferð sem lofaði í fyrstu góðu; markmiðið var að halda þessu blóðkrabbamein í viðráðanlegu ástandi. En 25. ágúst kom í ljós að storknunarfrumum er að fjölga aftur og það versta er að krabbameinslyfið hefur þá aukaverkun að ráðast á rauðu blóðkornin og fækka þeim, sem var ein af ástæðunum að ég var svona veik í sumar; í hjartanu, móð og þreytt og með endalausa verki í kviðnum út af hægðartregðu sem enginn gat gefið skýringu á.“

Hellen segir að „krabbameinshjúkkan sendi mig til heimilislæknis, og hann skrifaði á mig ný hægðalyf, stærri skammta sem virtust ekki breyta neinu. Svo síðastliðið hálft ár hef ég gengið á milli þeirra án þess að þær gætu hitt mig né hjálpað mér og voru báðar orðnar nokkuð leiðar að ég hringdi svona oft. Svo núna 21. september þegar ég hringdi og bað heimilislækninn að hringja á sjúkrabíl sagðist hún ekki gera það því hún væri búin að panta speglun á ristli eftir 2 vikur. Að ég ætti að bíða.“

Svar læknisins var mikil vonbrigði fyrir Hellen sem sagðist „grátandi af ótta ekki geta beðið svo lengi því ég væri svo móð og kvalin að ég rétt gæti staulast fram á klósett og til baka aftur í rúmið. Svo hún varð önug og sagði mér að hringja í 999 ef ég teldi mig of veika til að bíða eftir ristilspeglun. Og ég gerði það. Var komin um kvöldmat sama dag á Neyðarmóttökuna á St. Richard sjúkrahúsinu í Chichester og eftir blóðprufu um miðja nótt kom í ljós að ég var hreinlega að deyja.

Staðan er svo slæm hjá Hellen að hún á „hvorki fyrir litlum gámi né flugi, hvað þá peninga fyrir kistu og jarðaför – og örvænting yfir því hefur ekki gefið mér stundlegan frið ofan á að ég er hrædd við að deyja og geta ekki fengið neins konar læknishjálp. Ég er samt svo lánsöm að vinkona mín ætlaði að lána mér herbergi en það er oggulítið, aðeins 2x3x m sem ég var bara að frétta núna og þar er fyrir rosastórt rúm sem tekur víst allt gólfpláss – svo ég get ekki tæmt úr gámnum inní það eða sett upp bókahillurnar eða skrifborðið mitt til að búa til vinnuaðstöðu svo ég geti klárað, ef tíminn verður nægur, eiturblóma bókina mína og sitthvað annað og kannski fengið bókina útgefna áður en ég dey ef læknar á Íslandi gætu fundið krabbameins lyfjameðferð sem hægir aðeins á þessu svo ég fengi kannski nokkra mánuði aukalega.“

Hellen biðlar til fólks

„Svo ef einhver býr svo vel að hafa herbergi á lausu sem er ekki með rúmi eða húsgögnum þá endilega látið mig vita. Því spyr ég hér í þeirri von að þeir sem lesa þetta og eru aflögufærir að styrkja konu eins og mig fjárhagslega til að geta tekið gám til Íslands frá Englandi eins hratt og hægt er – þá eru allar upphæðir kærkomnar og safnast saman – Ég veit ég er að fara fram á mikið að fólk hjálpi mér en án hjálpar verður mér ekki mögulegt að borga fyrir gám og flugvél og allt hitt sem bíður mín á íslandi.

Þeir sem vilja hjálpa mér og eru aflögufærir geta lagt inn á bankareikning minn á Íslandi sem er á mínu nafni – Hellen Linda Drake – hjá Íslandsbanka á Suðurlandsbraut. Númerið á honum er 525 – 15 – 800660 og kennitala mín er 2906605999. Og takk til ykkar allra sem getið hjálpað. Ég met það mikils og meira en ég get fært í orð – ,,Guð blessi ykkur öll“

Skildu eftir skilaboð