Svala Björgvins gefur út nýtt lag

frettinInnlendarLeave a Comment

Ofurkonan og söngkonan farsæla Svala Björgvinsdóttir gaf út nýtt lag í dag sem óhætt er að segja að fái hárin til að rísa.

Myndbandið er einstaklega vel unnið og sýnir það íslenska náttúru í allri sinni dýrð en það er framleitt af hinni hæfileikariku Álfrúnu Kolbrúnardóttur í samstarfi við HljóðX en Álfrún er nú þegar farin að geta sér gott orð í bransanum. Lagið heitir ,,Birtunnar brú" og má sjá hér að neðan.

Svala þakkar eftirtöldum á facebooksíðu sinni:

Nýja lagið mitt og myndbandið "Birtunnar brú" er komið út á öllum streymisveitum! Vann með ótrúlega hæfileikaríku fólki að þessu öllu saman og vil þakka því sérstaklega fyrir því það þarf hóp af fólki til að búa til lag og tónlistarmyndband! Án þeirra væri þetta ekki hægt 💜

Skildu eftir skilaboð