Blaðamönnum á Ítalíu bolað burt af mótmælendum

frettinErlent

Í hafnarborginni Trieste á Ítalíu hafa verið nær stöðug mótmæli frá 15. október sl. eða frá því að ríkisstjórn landsins fyrirskipaði að á öllum vinnustöðum; opinberum stofnunum jafnt sem einkafyrirtækjum þyrfti allt starfsfólk að framvísa bóluefnapassa eða fara reglulega í PCR próf til að mega sækja vinnu.

Í mótmælaskyni fóru um 6000 verkamenn í verkfall og mótmæltu ásamt fjölda annarra og lömuðu þannig hafnarstarfið í borginni. Trieste hefur síðan verið helsti mótmælastaður gegn bóluefnapössum á Ítalíu.

Ríkisstjórnin hefur verið sökuð um að falsa myndir úr vefmyndavélum af svæðinu í þeim tilgangi að fela fjölda mótmælenda á staðnum. Upptökur af því má sjá hér.

Í dag var síðan blaðamönnum bolað burt af mótmælastað og þeir sakaðir um að vera málpípa ríkisstjórnarinnar í núverandi hvatningarherferð til að fá  fleiri í bólusetningu. Atburðinn má sjá hér.


Image